Skilmálar
Skilmálar og verklag sem Vinnuhjálp starfar útfrá.
Persónuverndarstefna
Vinnuhjálp meðhöndlar allar persónuupplýsingar í samræmi við íslensk lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og Evrópska löggjöf um persónuvernd.
Almenn úrvinnsla persónuupplýsinga
Persónuupplýsingar berast frá atvinnurekendum eða einstaklingum sem óska eftir aðstoð Vinnuhjálpar með tölvupósti. Ávallt er leitast eftir því að söfnun persónuupplýsinga sé haldið í algjöru lágmarki og um leið og úrvinnslu persónugagna er lokið er þeim eytt úr kerfum Vinnuhjálpar. Persónugögn eru ekki geymd í kerfum Vinnuhjálpar heldur hjá viðeigandi aðila hverju sinni.
Vefsíða Vinnuhjálpar
Vinnuhjálp safnar ekki upplýsingum frá þeim sem heimsækja https://vinnuhjalp.is. Engar vafrakökur eru gefnar út af heimasíðu Vinnuhjálpar, en þjónustuaðili telur fjölda heimsókna á síðuna án skráninga á frekari upplýsingum.
Samfélagsmiðlar
Vinnuhjálp hefur síður á ýmsum samfélagsmiðlum. Sú nálgun Vinnuhjálpar að safna ekki persónutengdum gögnum fylgir yfir á þær síður, í þeim skilningi að Vinnuhjálp notar ekki samfélagsmiðla til þess að afla upplýsinga um þá aðila sem heimsækja samfélagssíður Vinnuhjálpar.
Athuga skal samt persónuverndarstefnur hvers samfélagsmiðils fyrir sig, og þá vinnslu persónuupplýsinga sem miðillinn sjálfur nýtir sér. Listi af þeim samfélagsmiðlum sem Vinnuhjálp notar er eftirfarandi:
Innfellt efni af öðrum síðum
Notist Vinnuhjálp við innfellt efni af öðrum síðum (t.d. Youtube myndbönd, eða myndir af Instagram), þá þarf að hafa í huga að efnið sjálft fylgir reglum persónuverndar þeirrar síðu sem efnið er tekið af. Þessar síður gætu safnað upplýsingum, notað vafrakökur, eða fylgst með notkun á innfellda efninu.
Eyðing eða upplýsingargjöf
Ef viðskiptavinur eða aðili máls óskar eftir að koma með athugasemdir um meðhöndlun persónuupplýsinga, eða óskar eftir að upplýsingum um sínar persónuupplýsingar eða eyðingu þeirra, skal koma athugasemdum til Vinnuhjálpar á netfangið vinnuhjalp@vinnuhjalp.is.
Persónuverndarstefna þessi er rituð og gefin út 03.10.2023, og verður endurmetin ef breyting verður á rekstri Vinnuhjálpar en ávallt með lágmörkun á söfnun persónutengdra gagna og hámörkun á öryggi geymslu gagna í huga.
Samskipta- og siðareglur
Hlutverk Vinnuhjálpar er að styðja atvinnurekendur og einstaklinga við að byggja upp og viðhalda jákvæðri vinnustaðamenningu, og veita fræðslu og stuðning er kemur að mannauðstengdum málum.
Vinnuhjálp mun ávallt nálgast viðskiptavini og hlutaðeigandi með fullum trúnaði og heiðarleika í fyrirrúmi. Samskiptum er haldið gegnsæjum og upplýsingaflæði viðhaldið til allra viðeigandi aðila, upp að því marki að persónuupplýsingar annarra hlutaðeigandi aðila eru ekki ræddar. Að sama skapi eru allir verkferlar sem unnið er fyrirfram skilgreindir og gerðir öllum aðilum máls kunnugir þar sem við á.
Í öllum samskiptum ber Vinnuhjálp jafnframt að bera virðingu fyrir öllum viðmælendum og hafa samkennd með, en viðhalda hlutleysi og starfa ávallt af fagmennsku og af heilindum.
Samskipta- og siðareglur þessar eru ritaðar og gefnar út 03.10.2023, og verða endurmetnar ef breyting verður á rekstri Vinnuhjálpar.
Verklagsreglur
Vinnuhjálp vinnur ávallt útfrá fyrirfram ákveðnum verklagsreglum sem gilda jafnt yfir alla skjólstæðinga sem sækja þjónustu Vinnuhjálpar.
Almennt verklag
Vinnuhjálp leggur mikið upp úr því að allir mæti jafnir til borðs. Atriði líkt og aldur, áhugamál, búseta, fötlun, hárlitur, heilsufar, kyn, kyneinkenni, kynhneigð, kyntjáning, kynvitund, kynþáttur, lífsskoðanir, líkamsgerð, starfsgeta, stjórnmálaskoðun, trú, tungumál, útlit, þjóðernisuppruni, eða hvað eina annað sem skilgreina megi einstakling á er alfarið óháð störfum Vinnuhjálpar.
Tilgangur fyrsta fundar við hvern aðila er ávallt til að leyfa viðkomandi að tjá þau málefni sem viðkomandi óskar eftir aðstoð með, og laga þjónustu Vinnuhjálpar eftir óskum og þörfum hvers skjólstæðings fyrir sig. Gildir þetta bæði fyrir einstaklinga sem leita aðstoðar Vinnuhjálpar, sem og er Vinnuhjálp starfar fyrir atvinnurekanda í heild sinni.
Aðstæður hverju sinni eru metnar hlutlaust, en með hvern einstaka aðila í huga svo að þjónusta Vinnuhjálpar nýtist til að styrkja viðkomandi aðila sem einstakling sem og í starfi.
Sjái Vinnuhjálp fram á það á einhverjum tímapunkti að ekki verði fært að koma fram við alla aðila jafnt og/eða á hlautlausan máta, ber Vinnuhjálp að tilkynna aðstæður tafarlaust til viðeigandi aðila svo viðeigandi úrbótum sé hægt að koma þar á.
Samskipti
Öll samskipti við einstaklinga eru í trúnaði milli hvers aðila fyrir sig og Vinnuhjálpar, óháð því hvort að aðilinn hafi sem einstaklingur óskað eftir þjónustu Vinnuhjálpar, eða sækir þjónustu Vinnuhjálpar í gegnum atvinnurekanda sinn. Sé Vinnuhjálp að vinna að sérstæku verkefni fyrir hönd atvinnurekanda er aðilum máls ávallt tilkynnt um það hvernig gögnum máls sé háttað, og hver fái hvaða upplýsingar og hvenær.
Söfnun persónugagna
Vinnuhjálp leitast eftir því að takmarka alla söfnun og geymslu á persónugögnum almennt. Sé ekki hjá því komið er leitast við að styrkja og styðja einstaklinga til að halda utan um og sjá um eigin persónugögn.
Sé Vinnuhjálp skylt að skila af sér gögnum vegna úrlausna vissra mála, tilkynnir Vinnuhjálp öllum viðeigandi aðilum máls um hvaða gögn það séu, sem sem og hver fái gögnin afhend og afhverju.
Eyðing eða upplýsingargjöf
Ef viðskiptavinur eða aðili máls óskar eftir að koma með athugasemdir um meðhöndlun persónuupplýsinga eða verklag Vinnuhjálpar, er viðkomandi beðinn um að koma athugasemdum til Vinnuhjálpar á netfangið vinnuhjalp@vinnuhjalp.is.
Verklagsreglur þessar eru ritaðar og gefnar út 03.10.2023, og verða endurmetnar ef þörf er á.